Opið hús: Bræðratunga 4, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd laugardaginn 10. apríl 2021 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
LIND Fasteignasala og Hannes steindórsson kynna: Raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Suður og norður garður, nýlegt parket, nýlega málað, búið að skipta um rafmagnstöglu og tengla. Blöndunartæki endurnýjuð. Nýlegt teppi á stiga.Forstofa: Flísalögð með skápum. Hol: Parketlagt hol.
Gestasalerni: Gestasalerni með handlaug.
Stofur: Tvær parketlagðar stofur, gengið upp tvær tröppur uppí borðstofu og eldhús.
Fjögurra metra loftæð í borðstofu ásamt þakgluggum.Eldhús: Parketlagt, falleg innrétting og gott skápapláss.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með
útgengi út í aflokaðan garð.Efri hæð: Teppalagður stigi milli hæða
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt herbergi með sér fataherbergi.
Barnaherbergi: Parketlagt herbergi, sér fataherbergi á gangi fyrir framan herbergið.
Aðalbaðherbergi: Flísalagðir veggir, hvít innrétting, baðkar, ásamt handlaug og salerni.
Bílskúr: Bílskúr (24,2fm)ásamt bílastæði, heitt og kalt vatn, rafmagnshurðaropnari, stór gluggi.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla ásamt rúmgóðri sérgeymslu og annari sameiginlegri.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 [email protected]