Opið hús - Maríugata 9-11 Urriðaholti Garðabæ - sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14:00 - 15:00. Vandaðar nýjar íbúðir byggðar af ÞG Verk.
Opið hús: 05. febrúar 2023 kl. 14:00 til 15:00.Opið hús - Maríugata 9-11 Urriðaholti Garðabæ - sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14:00 - 15:00. Vandaðar nýjar íbúðir byggðar af ÞG Verk.
--- Bókið einkasýningu hjá sölumönnum og fyrir nánari upplýsingar ---
- Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, [email protected], 849-0672
- Hrafnkell P. H. Pálmason, lögg. fasteignasali, [email protected], 690-8236
- Guðmundur Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, [email protected], 898-5115
LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir að Maríugötu 9-11 í Urriðaholti, 210 Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílskúrar nokkrum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð.
Húsið er steinsteypt (efsta hæð CLT einingar) og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.
Íbúð 201: Er 133,6 fermetra fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð. Þar af er geymsla 12,7 fermetrar. Afhending er áætluð í júní 2023 eða fyrr en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.
Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús í alrými með stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi með snyrtingu inn af. Útgengt á svalir til vesturs úr stofu.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: https://https://tgverk.is/mariugata9-11/
Húsin eru vel staðsett steinsnar við Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.
ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.